Háborg fasteignasala og Þórunn Pálsd lgf kynna: Fallega endurnýjaða 3ja herb. risíbúð með tveimur svefnherbergjum, glæsilegu eldhúsi og fallegu útsýni. Þríbýli, sameiginlegur inngangur með miðhæð. Frábært skipulag og hönnun þar sem hver fermetri nýtist vel og eins eru margir súðarfermetrar til viðbótar við birt flatarmál. Í kjallara er 4,5 fm geymsla íbúðarinnar. Húsið og Íbúðin hafa verið mikið endurnýjuð á síðustu árum. Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 og [email protected]Komið er í forstofu með góðu skápaplássi, á vinstri hönd er hjónaherbergið með glæsilegum opnum fataskápum á tvo vegu auk súðarskápa.
Í miðri íbúðinni er glæsilegt alrými sem telur eldhús með góðu útsýni til norðurs að Esjunni og víðar. Eldhúsið var endurnýjað árið 2023 með nýrri innréttingu og raftækum, aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara einnig handklæðaofn. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja. Gott skápapláss og borðpláss. Eldhúsið rennur saman við stofuna sem er rúmgóð og falleg. Næst er gott baðherbergi með sturtu góðum hirslum og opnanlegum glugga. Næst er herbergi tvö sem er rúmgott með útgengi á sólríkar vestursvalir. Það er með innbyggðu skrifborði og góðum skápum. Árið 2023 var lagt nýtt harðparket á alla íbúðina, að baðherbergi undanskildu og íbúðin öll máluð. Undir tröppum í kjallara er geymsla íbúðarinnar sem er 4,5 fm og óupphituð, en birt flatarmál sjálfrar íbúðarinna er 54,9 fm. Sameiginlegt þvottahús er í kjallara.
Árið 2016 var þakið mikið endurnýjað þar sem skipt var um bárujárn, skemmt timbur endurnýjað, lagt nýtt þakpappaefni, nýjar þakrennur og niðurföll sett upp auk þess sem kvistir og skorsteinn voru klæddir upp á nýtt. Árið 2019 voru allir gluggar á rishæð ásamt svalahurð endurnýjuð, húsið viðgert, málað og útitröppur endurnýjaðar. Árið 2021 var skipt um glugga í sameign og árið 2022 voru skólplagnir endurnýjaðar auk þess sem dren var fullklárað umhverfis húsið.
Árið 2025 var hitakerfi hússins bætt með nýjum þrýstijafnara, skipt um pakkdósir og hitanema og nýr ofn settur upp í stofu.
Einstaklega falleg og vel hönnuð eign á þessum vinsælum stað þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir, þjónustu og fjölbreytt útivistarsvæði.
Þórunn Pálsdóttir, löggiltur fasteignasali
s: 773-6000 og [email protected]