Lambamýri 1, 225 Garðabær
Tilboð
Fjölbýli
3 herb.
95 m2
Tilboð
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2024
Brunabótamat
80.660.000
Fasteignamat
77.600.000

Glæsileg og vönduð 3ja herbergja íbúð með stæði í bílageymslu í nýrri byggð á Álftanesi
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna fallega og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 2. hæð við Lambamýri 1 á Álftanesi. Íbúðin er í nýlegu fjölbýlishúsi frá árinu 2024 og einkennist af vönduðum frágangi, aukinni lofthæð og björtum rýmum. Sér stæði í lokaðri bílageymslu með hleðslustöð fyrir rafbíl fylgir eigninni.

-  Sér stæði í lokaðri bílageymslu með hleðslustöð
-  Aukin lofthæð og loftskiptikerfi með varmaendurvinnslu
-  Vandaðar innréttingar og hágæða parket
-  Þjónustuaðstaða fyrir eldri borgara í húsinu


Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða á [email protected].

Eignin er skráð 95,1 fm samkvæmt HMS, þar af 87,1 fm íbúð og 8,0 fm sérgeymsla. Íbúðinni fylgja svalir og sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu.

Nánari lýsing:
Komið er inn í bjarta og vel skipulagða íbúð þar sem eldhús, borðstofa og stofa mynda opið alrými með aukinni lofthæð og útgengi á svalir.
Eldhúsið er með sérsmíðaðri innréttingu frá Voké III sem nær upp í loft. Vönduð steinborðplata með ljósu marmaraútliti prýðir eldhúsið og bætt hefur verið við eyju sem eykur bæði vinnupláss og tengir rýmið vel saman. Eldhúsinu fylgja innbyggður ísskápur með frysti, uppþvottavél og ofn frá AEG/Electrolux.
Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni, bæði með fataskápum.
Baðherbergið er flísalagt og búið hvítri innréttingu, walk-in sturtu, handklæðaofni, vegghengdu salerni og vönduðum blöndunartækjum frá Grohe.
Sér þvottahús er innan íbúðar og flísalagt í stíl við baðherbergið.
Á gólfum er hágæða parket frá Gólfefnabúðinni og íbúðin er búin sjálfstæðu loftskiptikerfi með varmaendurvinnslu sem stuðlar að góðum loftgæðum og hagkvæmri nýtingu hitans.
Sérgeymsla fylgir eigninni ásamt sérmerktu stæði í lokaðri bílageymslu með hleðslustöð fyrir rafbíl.

Þjónusta:
Á fyrstu hæð hússins er glæsileg þjónustuaðstaða fyrir eldri borgara sem er innangeng úr sameign hússins. Þar er meðal annars notaleg kaffiaðstaða þar sem hægt er að njóta  þjónustunnar á opnunartíma, án þess að þurfa að fara út úr húsinu.

Staðsetning:
Lambamýri er nýtt og eftirsótt íbúðahverfi á Álftanesi. Rétt við húsið eru leikskóli, grunnskóli, sundlaug og leikvellir. Þá er einnig stutt í fallegar gönguleiðir, náttúru og aðra helstu þjónustu.

Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða á [email protected].

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.