Háborg og Þórunn Páls lgf. kynna með stolti íbúð 402, glæsilega 4ra herbergja þakíbúð með stórbrotnu útsýni og 30 fm þaksvölum með heitum potti. Óhindrað útsýni til vesturs, suðurs og norðurs. Sérmerkt stæði í bílageymslu og 1,5 fm útigeymsla til viðbótar við birt flatarmál. Sjálf íbúðin er 157,9 fm og geymsla er 7,3 fm. Aukin lofthæð og frábært skipulag. Tvö baðherbergi og þrjú svefnherbergi. Stórt alrými og gólfsíðir gluggar eftir vesturhlið.
Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf. s:773-6000 og [email protected].
Sérlega vegleg eign með aukinni lofthæð, sér loftræsikerfi fyrir íbúðina, gólfhita og sérmerktu stæði í bílageymslu með rafhleðslustöð.Þorraholt 1 er nýtt glæsilegt 49 íbúða álklætt fjölbýlishús hannað af Hjalta Brynjarssyni og teymi hjá Nordic Office of Architecture. Húsið var byggt árið 2025 af Reir verk ehf.sem hefur getið sér gott orð fyrir vönduð vinnubrögð.
Komið er í rúmgóða forstofu með góðum skápum. Á vinstri hönd er gott herbergi með fataskápum. Forstofan opnast í stórglæsilegt 66,9 fm alrými með stórbrotnu útsýni til vesturs, suðurs og norðurs, að Snæfellsjökli, til sjávar og fjalla. Sólarlagið hér svíkur engan.
Eldhúsið er glæsilegt með innbyggðum ísskáp og frystiskáp frá Siemens ásamt spanhelluborði í eyjunni sem er vegleg tæpir 2,5 m að lengd með góðu rými fyrir barstóla. Helluborðið er innfellt í borðplötu og eldhúsvaskur er undirlímdur.
Stórir gólfsíðir gluggar eru á stórum hluta vesturhliðarinnar þannig að útsýni er frábært úr alrýminu. Það opnast á tveimur stöðum út á þaksvalirnar sem eru 30 fm með sama magnaða útsýninu. Þar er glænýr glæsilegur saltvatnspottur með 40 nuddstútum og 1,5 fm útigeymsla sem er til viðbótarvið birt flatarmál. Innst í alrýminu er stúkuð af falleg sjónvarpsstofa. Til vinstri er glæsileg hjónasvíta með rúmgóðu baðherbergi með sturtu og opnanlegum glugga og góðum fataskápum eftir heilum vegg. Við hliðina er þvottahús með opnanlegum glugga og góðum innréttingum fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Til hægri þegar komið er úr forstofu er annað herbergi með skápum og við hlið þess rúmgott og fallegt baðherbergi með sturtu og opnanlegum glugga.
Vandað harðparket er á öllum rýmum nema flísar á baðherbergjum og þvottahúsi. Flísar á baðherbergjum eru í hólf og gólf.
Innréttingar eru vandaðar og sérsmíðaðar, sjálfvirk ljós eru inni í fataskápum og quartz steinn í borðplötum í eldhúsi og á baði.
Á jarðhæð fremst á gangi er 7,3 fm geymsla íbúðarinnar, en þakíbúðin sjálf er 157.9 fm og birt flatarmál er samtals 165,2 fm.
Sérmerkt stæði í bílageymslu er á jarðhæð ásamt sameiginlegri hjólageymslu.
Eignin er sérlega vel staðsett, stutt frá stofnæðum og fjölbreyttri verslun og þjónustu í Smáralind og í Garðabæ. Nálægð við náttúruna í Heiðmörk og Vífilsstaðavöllur í bakgarðinum ásamt fleiri golfvöllum í nágrenninu.
Einstök þakíbúð í Garðabæ með mögnuðu útsýni.
Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 og [email protected]