Holtsgata 19, 220 Hafnarfjörður
129.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús með aukaíbúð
6 herb.
192 m2
129.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1955
Brunabótamat
95.150.000
Fasteignamat
111.900.000

Sjarmerandi einbýlishús í hjarta Hafnarfjarðar með aukaíbúð og bílskúr - Holtsgata 19
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna fallegt og vel staðsett einbýlishús á einni vinsælustu götu Hafnarfjarðar. Eignin hefur verið í eigu sömu fjölskyldu frá upphafi og ber þess merki að vel hefur verið hugsað um hana í gegnum tíðina. Hér er um að ræða fjölskylduvæna eign með mikla möguleika, aukaíbúð og bílskúr.

-  Frábær staðsetning í hjarta Hafnarfjarðar
-  Aukaíbúð á jarðhæð 
-  Falleg og björt aðalhæð með svölum til suðurs
-  Nýlega hellulögð verönd með snjóbræðslu 


Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða [email protected]

Húsið er skráð 192,3 fm samkvæmt HMS, þar af er bílskúr 32 fm. 
Nánari lýsing:

Aðalhæð:
Gengið er inn í forstofu sem leiðir inn á hol sem tengir saman rými hússins.
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp. Þar er einnig stigi upp á efri hæð.
Eldhús er í fallegum retro stíl, vel með farið og með gluggum á tvo vegu sem veita góða birtu, parket er á gólfi.
Svefnherbergi er með góðu skápaplássi, glugga og parketi á gólfi.
Baðherbergi er rúmgott, flísalagt á gólfi og veggjum, með viðarinnréttingu, handlaug, baðkari og salerni.
Stofa er stór og björt með gluggum í tvær áttir og útgengi út á svalir til suðurs, parket er á gólfi.
Efri hæð:
Á efstu hæð eru tvö svefnherbergi, bæði með gluggum. Annað herbergið er með dúk á gólfi en hitt með parketi. Gott geymslurými er einnig á hæðinni.

Jarðhæð / aukaíbúð:
Á jarðhæð er vel skipulögð aukaíbúð sem skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, svefnherbergi og baðherbergi. Sameiginlegt og rúmgott þvottahús er einnig á hæðinni.
Forstofa er með flísum á gólfi og góðu skápaplássi.
Frá forstofu er komið inn á hol sem tengir saman rými íbúðarinnar.
Eldhús er með hvítri innréttingu, góðu skápaplássi og tengi fyrir uppþvottavél. Gluggi er í eldhúsinu sem gefur fallega birtu og parket er á gólfi.
Stofa er rúmgóð og björt með gluggum á tvo vegu og parketi á gólfi.
Svefnherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi, glugga og parketi á gólfi. 
Baðherbergi er flísalagt á gólfi og upp á veggi, með góðri walk-in sturtu, handlaug og salerni.

Skólplagnir voru endurnýjaðar árið 2020 og dren sett umhverfis húsið

Bílskúr:
Bílskúr með nýlega endurnýjuðu þakjárni og nýrri hurð. Gott bílastæði er fyrir framan skúr.
Lóð:
Nýlega hefur verið hellulagt fyrir framan húsið og settur hiti í stétt sem nær að bílskúr.

Einstök staðsetning í hjarta Hafnarfjarðar þar sem öll helsta þjónusta, skólar, leikskólar og verslanir eru í göngufæri.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. 

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.