Opið hús: 21. mars 2026 kl. 15:00 til 15:30.Opið hús: Grænaborg 2, 190 Vogar, Íbúð merkt: 01 01 05. Eignin verður sýnd laugardaginn 21. mars 2026 milli kl. 15:00 og kl. 15:30.
Glæsileg 4ra herbergja endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi og stór verönd til suðurs – Grænaborg 2Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna: Fallega og vel skipulagða 4ra herbergja endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi við Grænaborg 2.
Um er að ræða íbúð í 10 íbúða vandað fjölbýlishúsi byggt árið 2022, hannað af Kristni Ragnarssyni arkitekt í samstarfi við Sir Arnar Gauta. Húsið er einangrað og klætt að utan með viðhaldslitlum trefjasementsplötum sem gera það einstaklega viðhaldslítið.
- Sérinngangur og stór verönd til suðurs
- Vel skipulögð 4ra herbergja íbúð
- Vandaðar innréttingar frá AXIS, Corian borðplötur og AEG tæki
- Rafhleðslustöð sem tilheyrir íbúðinniNánari upplýsingar um eignina veitir
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma
660-5532 eða
[email protected]Íbúðin er 137,8 fm samkvæmt HMS og nýtur einstakrar útiaðstöðu með stóra verönd til suðurs.
Nánari lýsing:Komið er inn í rúmgott
anddyri með fataskáp. Inn af forstofu er
geymsla.Stofa og
eldhús mynda bjart og opið alrými með góðri vinnuaðstöðu og miklu skápaplássi. Úr stofu er útgengt á
stóra verönd til suðurs sem býður upp á góða aðstöðu til útiveru.
Eldhús er sérlega vandað með innréttingu frá AXIS, Corian borðplötu frá Orkus og innbyggðum heimilistækjum frá AEG, þar á meðal innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með parketi á gólfi og fataskápum frá AXIS.
Úr hjónaherbergi er aðgengi að
einkabaðherbergi. Baðherbergin eru bæði flísalögð og búin vandaðri innréttingu frá Ísleifi Jónssyni. Á baðberbergjum er sturta, salerni, handlaug og innrétting.
Þvottahús er rúmgott með tengi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt innréttingu með skúffum.
Geymsla og lóð:Á lóðinni er 12 fm
skúr sem fylgir íbúðinni og nýtist vel til geymslu.
Rafhleðslustöð fyrir rafbíl tilheyrir íbúðinni.
Húsið:Fjölbýlishúsið var byggt 2022 og hannað af Kristni Ragnarssyni arkitekt (KRARK) í samstarfi við Sir Arnar Gauta.
Húsið er einangrað og klætt að utan með viðhaldslitlum trefjasementsplötum. Íbúðirnar eru búnar þreföldu gleri, loftræstikerfi og LED lýsingu.
Hverfið:Grænaborg er í nýju og vaxandi íbúðahverfi í Vogum sem hefur byggst upp á undanförnum árum. Hverfið er rólegt og fjölskylduvænt með fallegu umhverfi við sjávarsíðuna. Í nágrenninu er bæði leik- og grunnskóli og áform eru um frekari uppbyggingu skóla og þjónustu samhliða stækkun hverfisins.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.