Opið hús: 22. mars 2026 kl. 14:00 til 15:00.
Fjölskylduvæn náttúruparadís – vandað heilsárshús í Reykjaskógi
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna til sölu Ártún 30 í Reykjaskógi.Aðeins rúman klukkutíma frá Reykjavík og 14 mínútna akstur frá Laugarvatni stendur þetta einstaklega fallega hannaða heilsárshús í hjarta Gullna hringsins. Hér sameinast kyrrð náttúrunnar og vönduð bygging í eign sem hentar jafnt sem frístundahús eða heilsársbúsetu.
Nánari upplýsingar veitir
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma
660-5532 eða
[email protected] Húsið er 116,5 fm á einni hæð með 33,7 fm viðarpalli.Afhent fullbúið með helstu húsgögnum – tilbúið til notkunar frá fyrsta degi.
Húsið sjálftHúsið er íslensk hönnun, teiknað af Ívari Haukssyni og framleitt af Nordroof Ísland. Byggt samkvæmt íslenskum stöðlum og hannað með heilsársnýtingu í huga.
Komið er inn í
forstofu með fataskápum og parketi á gólfi.
Inn af forstofu er
þvottahús með innréttingu, vaski og
auka salerni – þvottavél og þurrkari fylgja.
Í húsinu eru
þrjú rúmgóð svefnherbergi, í hjónaherbergi er góður fataskápur. Eitt herbergið (16,8 fm) er sérstaklega rúmgott og hentar vel sem hjónasvíta eða rúmgóð gestaaðstaða.
Stofan er björt og opin með fallegu flæði inn í eldhús og út á rúmgóðan
viðarpall – fullkomið rými fyrir samveru og notalegar stundir allt árið um kring.
Eldhúsið er sérlega fallegt með graphite gráum innréttingum, viðarborðplötu og ljósgrárri eyju með vínkæli.
Vönduð tæki fylgja: ísskápur með frysti, innbyggð uppþvottavél, bakaraofn og helluborð með innbyggðri viftu.
Baðherbergið er flísalagt með walk-in sturtu, upphengdu salerni og vandaðri innréttingu.
Aðstaða og búnaður- Gólfhiti í öllum rýmum
- Ál-tré gluggar og hurðir (RAL 7016)
- Bræddur tvöfaldur þakpappi
- Lagnaleið fyrir heitan pott
- Lagnaleið fyrir rafhleðslu
- Steyptur sökkull og grófjafnað bílaplan
- Lóð er hægt að kaupa eða leigja.
Þetta er vel hönnuð eign þar sem gæði, notagildi og fallegt umhverfi fara saman.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.