Furugerði 29 (107), 108 Reykjavík (Austurbær)
112.900.000 Kr.
Hæð
4 herb.
127 m2
112.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2023
Brunabótamat
67.300.000
Fasteignamat
180.700.000

Háborg fasteignasala og Jórunn lögg.fasteignasali kynna í einkasölu, Furugerði 29, 108 Reykjavík. Um er að ræða fallega hæð með sérinngangi og stórum afgirtri verönd að stærð 17,6 fm sem snýr til suðurs og öðrum sem er 24,4 fm sem snýr til norðus. Íbúðin er 4. herbergja á 1.hæð samtals 127,2 fm þar af er geymsla í kjallara 9,8 fm. Eigninni fylgir stæði í bílakjallara. Frábært staðsetning við Fossvogin. 

Um er að ræða fallega spennandi vistvæna hæð í rótgrónu miðborgarsvæði. Á mjög eftirsóknarverðu svæði sem henta öllum aldurshópum. Hæðin er björt og nútímaleg með hagnýtu skipulagi.  

Nánari lýsing á eigninni: Sér inngangur að hæðinni, þegar genngið er inn í anddyri eru góðir fataskápar. Úr forstofu blasir við sjónvarpshol sem er rúmgott og gengist vel við alrýmið sem er opið. Eldhúsið með fallegri ljóri innréttingu og eyja á móti sem hægt er að sytja við. Stofur mjög rúmgóðar og bjartar með útgengi út á verönd með garði. Möguleiki er á samkvæmt teikningu að bæta við einu svefnherbergi á kostnað stofunar. Salernið er rúmgott og með góðri snyrti aðstöðu. Svefnherbergin tvö eru bæði með skápum, þau eru rúmgóð og björt. Geymsla í kjallara að stærð 9,8 fm. Eigninni fylgir einnig eitt bílastæði í bílkjallara. 

Húsfélag: í húsinu er virkt húsfélag, mánaðargjöldin eru kr 28.000- með framkvæmdagjaldi sem er kr. 8.000-. ATH. sér rafmagnsmælar fyrir hverja íbúð.

Húsið: Útveggir húsins eru úr CLT krosslímdum timbureiningum, einangraðir að utan og klæddir með viðhaldslítilli báruálkæðningu, veðurþolnum Cembrit-plötum og timburklæðningu sem sameina fallegt útlit, endingu og þol gagnvart íslenskri veðráttu.
Í eldhúsi eru  allar innréttingar eru í ljósum MDP - spónaplata klædd með náttúrulegum viðarspón frá Voke-3. borðplötur úr HPL (high pressure laminate) með ljósgráu yfirborði með steináferð frá Kronospan. Í eldhúsi eru vönduð innbyggð eldhústæki og spanhelluborð.  Íbúðin er loftræst með sjálfstæðu loftskiptakerfi frá norska framleiðandanum Flexit. Kerfið blæs inn fersku lofti í íverurými og dregur út loft frá baðherbergjum, þvottahúsi og eldhúsi. Varmi úr útsoginu er fluttur yfir í ferska loftið með varmaendurvinnslu án þess að blanda loftinu saman.  Gluggar eru ál-timbur gluggar frá danska framleiðandanum Ideal-Combi, Gler er tvöfalt k-einangrunargler og sérstaklega hljóðeinangraðir þar sem við á. 

Hverfið: Hverfið státar meðal annars af metnaðarfullu skólastarfi og íþróttastarfi. Ásamt því má þar finna eitt fallegasta útivistarsvæði borgarinnar, Fossvogsdalinn. Dalurinn er miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu og mikilvægur hlekkur í keðju opinna svæða allt frá miðborg Reykjavíkur að Elliðavatni og Heiðmörk.

Nánari upplýsingar veitir Jórunn Lögg. fasteignasali, í síma 845-8958, tölvupóstur [email protected].
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.






.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.