Háborg og Þórunn Pálsdóttir lgf kynna fallegt og mikið endurnýjað raðhús á góðum stað í neðra Breiðholti. Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með útsýni og útgengi út á stórar svalir til vesturs, fjögur svefnherbergi, þar af eitt sem nýtt er sem fjölskyldurými með útgengi út í sólríkan garð, stílhreint eldhús með innbyggðum tækjum og góðum eldhúskrók, glæsilega hannað baðherbergi og gestasnyrting, anddyri og hol með fatahengi, sér þvottahús og 20 fm bílskúr með jafnstórri gryfju undir, sem er ekki inni í fermetratölu hússins. Gróinn sólríkur garður með berjarunnum, myndarlegum trjám og góðum palli. Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 og
[email protected]Raðhúsið hefur verið mikið endurnýjað á einstaklega smekklegan hátt þar sem nýjar framkvæmdir hafa nútímavætt húsið án þess að missa sjónar á upprunalegum sjarma og góðri hönnun með efnisvali og útfærslum. Öll gólf nema þvottahús og bílskúr eru flotuð undir ný gólfefni og hitalagnir eru í gólfi miðpalls. Loft á miðpalli og baðherbergi eru endurnýjuð með innfelldri lýsingu, nýjar raflagnir og tenglar með dimmer, nýjar neysluvatnslagnir, nýr dúkur er á þaki og múrviðgerðir utanhúss eru yfirstaðnar. Gluggar endurnýjaðir að mestu leyti.
Gengið er inn á miðpall hússins frá fallegum forgarði þar sem morgunsólar nýtur. Tvö hellulögð bílastæði með hitalögnum eru fyrir framan bílskúr sem er með góðri lofthæð og gryfju undir honum öllum. Komið er inn í anddyri með góðum fataskáp. Gólfhiti er á miðpalli og er korkur á gólfi sem tónar einkar vel við innihurðir hússins og innréttingar. Á vinstri hönd er rúmgott bjart þvottahús með vinnuborði og vaski og opnanlegum glugga. Flísar á gólfi þvottahúss.
Inn af anddyri er bjart hol sem tengir efri og neðri hæðir í sérlega góðu flæði, en hálf hæð er niður í herbergjaálmu og hálf hæð upp í stofu. Á miðpallinum er gott fatahengi og einstaklega huggulegt og bjart uppgert eldhús með góðum eldhúskrók og glugga til austurs. Steinn er í borðplötu og skápapláss gott, meðal annars tveir búr- og tækjaskápar. Öll heimilistæki eru innbyggð. Sérsmíðaðir bekkir með góðum hirslum undir eru bæði í eldhúskrók og í holi. Uppgerð gestasnyrting er einnig á miðpalli.
Gengið er upp hálfa hæð i bjarta og glæsilega stofu með stórum vesturgluggum eftir allri hliðinni. Heillandi panell er á stofuloftum og veggjum við borðstofu. Útgengt er á vestursvalir með fallegu útsýni og kvöldsól. Eitt gott svefnherbergi er á efsta palli.
Gengið er hálfa hæð frá miðpalli niður á neðsta pall. Þar er gott skápapláss og þrjú góð svefnherbergi en herbergjaskipan hefur verið breytt frá upprunalegri teikningu. Milliveggur við skápa er niðurlímdur ofan á gólfefni sem auðvelt er að fjarlægja og breyta hjónaherbergi aftur skv. upprunalegri teikningu. Beint af augum er gengið út í garðinn í gegnum fjölskylduherbergi sem lokast með rennihurð. Góður nýlegur viðarpallur er í garði. Baðherbergið er glæsilega endurnýjað og hefur tekist einkar vel að skapa spa stemningu með fallegri hönnun og efnisvali. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með grænum og hvítum flísum, stórum spegli og lökkuðum korki á vegg. Flísalagður bekkur er við baðker með hirslum, innbyggður skápur er við vask og blöndunartæki eru frá Vola. Loft endurnýjað með innbyggðri lýsingu og rauf fyrir sérsaumað sturtuhengi.
Sérstaklega heillandi og mikið endurnýjað raðhús á þessum vinsæla og miðlæga stað í borginni, þar sem stutt er í fjölbreytta þjónustu í Mjóddinni, í leik- og grunnskóla, frábær útivistarsvæði og helstu samgönguæðar, þar á meðal góða hjólastíga.
Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf. 773-6000 og
[email protected]Að neðan er hlekkur á viðtal við seljanda um húsið og fleira.
https://www.mbl.is/smartland/heimili/2024/10/27/god_byggingarlist_verndar_folk_fyrir_umhverfinu/?fbclid=IwZXh0bgNhZW0CMTEAAR0edREWrS4094AHEQ6ATvSEWuBsJTr3dWMkpWi329B4hrAhZd6SMB4pQDc_aem_kmTuOlvDrpvLHo768h0KHA