Sólheimar 23, 104 Reykjavík (Vogar)
61.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
2 herb.
72 m2
61.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1961
Brunabótamat
33.650.000
Fasteignamat
56.350.000
Opið hús: 26. ágúst 2025 kl. 17:00 til 17:30.

Háborg og Þórunn Pálsdóttir lgf kynna íbúð 1102,  fallega útsýnisíbúð á 11. hæð við  Sólheima 23, 104 Reykjavík.  Íbúðin er 72 fm auk geymslu í kjallara sem er um 3,5 fm.  Til viðbótar eru  9,1 fm skjólgóðar suðursvalir yfirbyggðar að hluta. Stórfenglegt útsýni til suðurs er úr íbúðinni og af svölunum.
Rúmgott alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi og útgengi á suðursvalir. Gott svefnherbergi. Glæsilegt baðherbergi tekið í gegn árið 2024.  Húsvörður er starfandi í byggingunni.
Nánari upplýsingar veitir Þórunn Pálsdóttir Lögg. fasteignasali, í síma 773-6000,  eða [email protected].


Nánari lýsing:

Komið er í rúmgott hol  þar sem á hægri hönd er gott svefnherbergi (eldhús skv. samþykktum teikningum),  við hliðina er glæsilegt baðherbergi sem var endurnýjað árið 2024.  Það er með fallegum grænum veggflísum, sturtu sem gengið er beint inní, upphengdu Bidet salerni (sjálfhreinsandi)  og opnanlegum  glugga.  Geymsla  sem er 1,8 fm að stærð er við hliðina á baðherberginu, þar er tengi fyrir þvottavél.  Gangurinn rennur saman við fallegt alrými sem telur eldhús, borðstofu og stofu þaðan sem gengið er út á rúmgóðar suðursvalir, yfirbyggðar að hluta.  (Skv. teikningu var svefnherbergi í hluta stofunnar)
Raflagnir íbúðarinnar voru endurnýjaðar árið 2019. Harðparket var lagt á hol og svefnherbergi árið 2022, en eldra parket er á alrými.
Stórbrotið útsýni er úr íbúðinni og af svölunum  til suðurs til fjalla og sjávar. 
Sameignin er hugguleg og rúmgóð og eru sameiginlegar svalir með frábæru útsýni til norðurs á hæðinni.
Sameiginlegt þvottahús og fleira er í sameign.
Viðhald á húsinu er reglubundið og yfirstandandi framkvæmdir eru að fullu fjármagnaðar.
 
Mjög skemmtileg útsýnisíbúð á 11. hæð á þessum vinsæla stað þar sem stutt er í skóla og fjölbreytta þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Þórunn Pálsdóttir Lögg. fasteignasali, í síma 773-6000, tölvupóstur [email protected]s.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.