Strandvegur 6, 210 Garðabær
94.700.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
110 m2
94.700.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2004
Brunabótamat
67.280.000
Fasteignamat
82.550.000
Opið hús: 26. ágúst 2025 kl. 17:30 til 18:00.

Opið hús að Strandvegi 6 í Garðabæ. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 26. ágúst 2025 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Háborg fasteignasala kynnir Strandveg 6.
 
Björt og vel skipulögð 110,3 fm. 3ja herbergja íbúð á fyrstu hæð í hinu vinsæla Sjálandshverfi. Sér bílastæði í lokaðri bílageymslu.
 
Samkvæmt opinberri skráningu er birt stærð eignarinnar 110,3 fm. Þar af er íbúðarrými 103,3 m2 og sér geymsla í kjallara 7 fm. 

Nánari lýsing
Anddyri er með góðum fataskáp. Myndadyrasími.
Eldhús er rúmgott með góðri innréttingu, bakarofn í vinnuhæð.
Stofa er stór og björt með fallegu útsýni. Setustofa, borðstofa og sjónvarpshol í stóru rými.
Hjónaherbergi er rúmgott með stórum fataskáp.
Barnaherbergi er með fataskáp og björtum gluggum.
Baðherbergi er með baðkari, upphengdu salerni og handklæðaofni. Gott pláss í innréttingu, flísar á gólfi og veggjum.
Þvottahús er inn af eldhúsi. Pláss fyrir þvottavél og þurrkara og gott borðpláss. Flísar á gólfi.
Geymsla er inn af þvottahúsi. Flísar á gólfi.
Önnur sér geymsla er á sameignargangi í kjallara.
Sér bílastæði í snyrtilegri lokaðri bílageymslu.

Hjóla- og vagnageymsla er sameiginleg.

Lóð hússins er vel hirt. Stór bakgarður með leiktækjum.

Húsið er vandað og ber með sér gott viðhald. Nýlegt parket er á íbúðinni. Aðeins sex íbúðir í stigaganginum.

Fasteignamat næsta árs er kr. 90.550.000.

Um er að ræða fallega íbúð á besta í stað í Sjálandshverfinu þar sem stutt er skóla og alla þjónustu. Mikið af skemmtilegum gönguleiðum eru í hverfinu ásamt ylströnd sem hægt er að nýta vel á sólríkum dögum.

Nánari upplýsingar veitir Þórir Helgi Sigvaldason fasteignasali og lögmaður í s. 823-7170 og [email protected].

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.